Ég fór með hóp í grenndarnámi í dag í Narfakotsseylu. Þar var frábært veður. Krakkarnir skemmtu sér konunglega eins og venjulega. Við fundum fullt af glerbrotum sem voru búin að veltast um í fjörunni lengi og litu því út eins og steinar. Einnig fundu krakkarnir fullt af skeljum og fleiru.

Við fundum glas sem við tókum með okkur upp í skóla. Þegar þangað var komið sáum við að í glasinu leyndust lífverur sem við höfðum aldrei séð áður. Við náðum okkur í víðsjá til þess að skoða þetta nánar. Þetta vakti mikla lukku og fengu allir nemendur sem höfðu áhuga á að skoða þetta nánar. Við náðum því miður ekki að finna út hvaða lífverur þetta voru en við gátum skemmt okkur við að skoða og rannsaka – það er fyrir öllu.

 

Kveðja

Erna Ósk

Narfakotsseyla

Nýja útikennslusvæði hjá grunnskóla og leikskólum hér í Innri-Njarðvík hefur verið tekið í notkun og við hvetjum fólk til að skoða svæðið. Frekari framkvæmdir eru fyrirhugaðar á næstunni en það eiga eftir að koma einhverskonar leiktæki á svæðinu.

Úr fundargerð USK þann 17. mars

Lagðar fram hugmyndir nemenda Akurskóla og barna af leikskólunum Holti og Akri um nýtingu Kópu til útikennslu og útivistar.

USK ráðið þakkar nemendum fyrir frábærar hugmyndir um nýtingu svæðisins. Kópan er falleg útivistarperla og því mikilvægt að allar framkvæmdir þar séu í sátt við umhverfið sem og nárganna þess. USK er falið að vinna áfram að humyndum að framtíðarnýtingu svæðisins.

Fundur í Akurskóla þann 4. mars

Í dag funduðu fulltrúar nemenda í Akurskóla og leikskólunum Akri og Holti með Magnúsi í Akurskóla. Nemendur voru búnir að undirbúa skýli, hreystiþraut, leiktæki, málverkagarð og ýmislegt fleira. Verið var að prófa mismunandi útfærslur á líkönum. Magnús ætlar svo að skoða hugmyndirnar, teikna svæðið upp og koma því til umhverfis og skipulagsnefndar þar sem málið verður tekið til umfjöllunar.

Kópu-líkan

Magnús foreldri barns á Holti og í Akurskóla er að búa til líkan af  Kópu fyrir okkur. Líkanið verður staðsett í Akurskóla en nú eru börnin að keppast við að búa til lítil líkön af því sem þau vilja hafa á svæðinu. Við þurfum að íhuga stærð hluta þar sem barn sem er 130 cm á hæð er einungis 2.25 cm á líkaninu. Í myndamöppunni má sjá sýnishorn af því sem börnin hafa verið að gera í leikskólanum Holti.

Fundur með Umhverfis- og skipulagssviði

Fimmtudaginn 28. janúar hittust nemendur og kennarar úr skólunum þremur. Þar kynntu nemendur hugmyndir sínar fyrir útisvæðið í Kópu og skiptust á skoðunum. Sveinn Númi sat fundinn fyrir hönd Umhverfis- og skipulagssvið Reykjanesbæjar og tók vel í hugmyndir nemenda. Framundan er að nemendur munu útfæra hugmyndirnar í gerð líkana í réttum hlutföllum. Líkanið verður til sýnis í Akurskóla þegar það er fullunnið. Nánar um það síðar.

Hugmynd að skjólhýsi

Út frá hugmyndum nemenda, fóru ábyrgðamenn verkefnisins, Anna Sofia á Holti og Karólína í Akurskóla í leiðangur til að skoða hugsanlegar útfærslur á skjólhýsi fyrir Kópu. Við heimsóttum sumarbústað í Sandgerði og fengum góðar upplýsingar um mögulega útfærslu.

Kópusíðan komin!

Velkomin á heimasíðu Kópu. Hér verður hægt að lesa fréttir um útikennslu í víkinni Kópu.

Frá því í haust hafa nemendur í Akurskóla og í leikskólunum Akri og Holti unnið að hugmyndum að uppbyggingu útikennslusvæðis í Kópu. Síðast fimmtudag áttum við fund með fulltrúa frá Umhverfis- og skipulagssvið Reykjanesbæjar. Á fundinum kynntu fulltrúar nemenda frá öllum skólastigum hugmyndir, teikningar og ræddu þau. Meðal annars voru útfærslur á skjólhýsi, bryggju, hreystivöll og leiksvæði til umræðu. Fundurinn var skemmtilegur og vel var tekið í hugmyndir nemenda!